Lifandi tónlist · sameiginleg gleði
Hópefli á vinnustað sem brýtur upp daginn
Safnið vinnufélögunum saman í tónlist og samsöng á vinnustaðnum, í hádeginu eða á vinnustofudegi. Tónlistin sameinar hópinn og keppnin fær alla til að taka þátt. Umræðan um úrslitin og hvernig stemningsbónusunum var dreift heldur svo áfram löngu eftir að dagskránni lýkur.
Allir með í tónlistinni
Í hádeginu eða á vinnustofudegi þarf ekkert dansgólf. Vinnufélagarnir kjósa lög, finna liðin sín og giska saman á meðan Fimman stillir tónlistina og keppnina eftir hópnum.
Allur hópurinn verður hluti af tónlistinni
Tónlist og samsöngur eru í forgrunni. Liðin, búningarnir og kvissið gera þátttökuna enn skemmtilegri.
- Liðaskipting og búningar
- Borðnúmer, árgangar og liðsbúningar hjálpa gestum að finna sína liðsfélaga og koma liðspeppinu af stað.
- Staðan í beinni
- Stöðutafla í beinni, eða live leaderboard, sýnir stöðu liða og einstaklinga á meðan dagskráin gengur. Sjáið stigin safnast upp þegar lögin og kvissið halda áfram.
- Lagatextarnir beint í símann
- Þegar svarið er komið birtast lagatextarnir í símunum. Þannig geta allir fylgst með textanum og sungið saman.
- Montréttur og verðlaun
- Sigurvegararnir vinna sér inn montréttinn og fá líka verðtryggðan afslátt af giggum hjá Fimmunni. Enn ein ástæða til að peppa liðið og taka þátt í fjörinu.
Tónlist í hádegishléinu
Safnið vinnufélögunum saman í 45 til 60 mínútur. Gestir kjósa lögin, syngja með og spurningarnar fléttast inn í tónlistina. Létt og skemmtileg leið til að hrista aðeins upp í hópnum um miðjan dag.
Brjótið upp vinnustofudaginn
Milli umræðna og verkefna getur verið gott að gera eitthvað allt annað saman. Fimman kemur með sameiginlega tónlistarstund þar sem hópurinn fær að syngja, hlæja og taka þátt.
Enginn undirbúningur hjá ykkur
Fimman leggur til allan búnað og dagskráin hefst strax með lagakosningu. Þið þurfið ekkert að útvega eða undirbúa.
Fyrir vinnustaðinn ykkar
Dagskráin er í boði á höfuðborgarsvæðinu, án lágmarks eða hámarks á fjölda þátttakenda. Skoðið verðið í reiknivélinni og sendið fyrirspurn með dagsetningu og tíma. Allt er innifalið og enginn aukakostnaður.
Væntanlegt: ykkar eigin spurningar
Bókunaraðili mun geta búið til sínar eigin spurningar inni á bókuninni. Þær fléttast inn í tónlistina og gera viðburðinn enn persónulegri. Fullkomið fyrir brúðkaup eða til að negla innanhússhúmorinn hjá hópnum.
Væntanlegt strax helgina 24. og 25. október 2026.