← Fimman

Lifandi tónlist · sameiginleg gleði

Tónlist og samsöngur á árgangamótum

Safnið árganginum saman í tónlist og samsöng á árgangamótinu. Tónlistin sameinar hópinn og keppnin fær alla til að taka þátt. Umræðan um úrslitin og hvernig stemningsbónusunum var dreift heldur svo áfram löngu eftir að dagskránni lýkur.

Allir með í tónlistinni

Árgangarnir verða að liðum án fyrirhafnar. Þeir velja lög, giska og syngja saman, svo gömul kynni fá nýtt liðspepp við tónlistina. Viltu dansgólf? Bókaðu DJ, hljómsveit eða annan trúbba. Viltu að allir séu með og á kafi í fjörinu? Bókaðu Kvissbadorinn.

Allur hópurinn verður hluti af tónlistinni

Tónlist og samsöngur eru í forgrunni. Liðin, búningarnir og kvissið gera þátttökuna enn skemmtilegri.

Liðaskipting og búningar
Borðnúmer, árgangar og liðsbúningar hjálpa gestum að finna sína liðsfélaga og koma liðspeppinu af stað.
Staðan í beinni
Stöðutafla í beinni, eða live leaderboard, sýnir stöðu liða og einstaklinga á meðan dagskráin gengur. Sjáið stigin safnast upp þegar lögin og kvissið halda áfram.
Lagatextarnir beint í símann
Þegar svarið er komið birtast lagatextarnir í símunum. Þannig geta allir fylgst með textanum og sungið saman.
Montréttur og verðlaun
Sigurvegararnir vinna sér inn montréttinn og fá líka verðtryggðan afslátt af giggum hjá Fimmunni. Enn ein ástæða til að peppa liðið og taka þátt í fjörinu.

Árgangarnir saman í lið án fyrirhafnar

Sérstilling fyrir árgangamót setur árgangana saman í lið án neinnar fyrirhafnar. Þannig verður árgangurinn að liðinu ykkar í sameiginlegri tónlistarstund.

Lögin tengja hópinn saman

Gestir kjósa lögin og syngja með. Spurningarnar fléttast inn í tónlistina og staða liða og einstaklinga birtist í beinni. Lagatextarnir koma í símana svo allir geti sungið með.

Einfalt fyrir skipuleggjendur

Dagskráin tekur 45 til 60 mínútur og hefst strax með lagakosningu. Fimman leggur til allan búnað og þið þurfið ekkert að útvega eða undirbúa.

Skipuleggið árgangamótin

Fimman er í boði á höfuðborgarsvæðinu, án lágmarks eða hámarks á fjölda þátttakenda. Skoðið verðreiknivélina og sendið fyrirspurn um árgangamótin. Allt er innifalið og enginn aukakostnaður.

Væntanlegt: ykkar eigin spurningar

Bókunaraðili mun geta búið til sínar eigin spurningar inni á bókuninni. Þær fléttast inn í tónlistina og gera viðburðinn enn persónulegri. Fullkomið fyrir brúðkaup eða til að negla innanhússhúmorinn hjá hópnum.

Væntanlegt strax helgina 24. og 25. október 2026.

Skoða verð og senda fyrirspurn →