← Fimman

Lifandi tónlist · sameiginleg gleði

Tónlist og samsöngur á spilakvöldi

Safnið hópnum saman í tónlist og samsöng á spilakvöldinu. Tónlistin sameinar hópinn og keppnin fær alla til að taka þátt. Umræðan um úrslitin og hvernig stemningsbónusunum var dreift heldur svo áfram löngu eftir að dagskránni lýkur.

Allir með í tónlistinni

Spilakvöldið fær nýjan leik þegar gestir kjósa lög, giska í liðum og syngja með. Keppnisskapið fær að njóta sín án þess að tónlistin hætti að vera aðalatriðið.

Allur hópurinn verður hluti af tónlistinni

Tónlist og samsöngur eru í forgrunni. Liðin, búningarnir og kvissið gera þátttökuna enn skemmtilegri.

Liðaskipting og búningar
Borðnúmer, árgangar og liðsbúningar hjálpa gestum að finna sína liðsfélaga og koma liðspeppinu af stað.
Staðan í beinni
Stöðutafla í beinni, eða live leaderboard, sýnir stöðu liða og einstaklinga á meðan dagskráin gengur. Sjáið stigin safnast upp þegar lögin og kvissið halda áfram.
Lagatextarnir beint í símann
Þegar svarið er komið birtast lagatextarnir í símunum. Þannig geta allir fylgst með textanum og sungið saman.
Montréttur og verðlaun
Sigurvegararnir vinna sér inn montréttinn og fá líka verðtryggðan afslátt af giggum hjá Fimmunni. Enn ein ástæða til að peppa liðið og taka þátt í fjörinu.

Nýr taktur á spilakvöldinu

Brjótið upp spilakvöldið með lifandi tónlist. Gestir kjósa lögin, syngja með og láta keppnisskapið njóta sín þegar spurningarnar fléttast inn í samsönginn.

Tónlistin byrjar strax

Dagskráin tekur 45 til 60 mínútur og hefst með lagakosningu. Fimman leggur til allan búnað og þið þurfið ekkert að útvega eða undirbúa.

Bjóðið Fimmunni á spilakvöldið

Dagskráin er í boði á höfuðborgarsvæðinu, án lágmarks eða hámarks á fjölda þátttakenda. Skoðið verðið í reiknivélinni og sendið fyrirspurn. Allt er innifalið og enginn aukakostnaður.

Væntanlegt: ykkar eigin spurningar

Bókunaraðili mun geta búið til sínar eigin spurningar inni á bókuninni. Þær fléttast inn í tónlistina og gera viðburðinn enn persónulegri. Fullkomið fyrir brúðkaup eða til að negla innanhússhúmorinn hjá hópnum.

Væntanlegt strax helgina 24. og 25. október 2026.

Skoða verð og senda fyrirspurn →