Fimman,Eini sanni kvissbadorinn

Kvissbador hjá Fimmunni

Hópefli með lifandi tónlistarquiz og samsöng

Ekki bara trúbador sem spilar. Kvissbador sem fær alla með. Fimman sameinar lifandi tónlist og samsöng við liðakeppni. Salurinn kýs lög, giskar og syngur með. Fimman les stemninguna og stillir jafnvægið á meðan á gigginu stendur.

Byrjar á sekúndunni. Gestir kjósa strax. Dagskráin tekur 45 til 60 mínútur. Fimman leggur til allan búnað; þið þurfið ekkert að útvega eða undirbúa.

Í boði á höfuðborgarsvæðinu. Kynntu þér kvissbador →

Kvissbador?

Fyrst og fremst tónlist og samsöngur í skemmtilegum kvissbúningi, samtals 45 til 60 mínútur. Fimman les stemninguna og fléttar spurningunum inn í tónlistina.

Glæra 1 af 9

Allur hópurinn verður hluti af tónlistinni

Tónlist og samsöngur eru í forgrunni. Liðin, búningarnir og kvissið gera þátttökuna enn skemmtilegri.

Liðaskipting og búningar
Borðnúmer, árgangar og liðsbúningar hjálpa gestum að finna sína liðsfélaga og koma liðspeppinu af stað.
Staðan í beinni
Stöðutafla í beinni, eða live leaderboard, sýnir stöðu liða og einstaklinga á meðan dagskráin gengur. Sjáið stigin safnast upp þegar lögin og kvissið halda áfram.
Lagatextarnir beint í símann
Þegar svarið er komið birtast lagatextarnir í símunum. Þannig geta allir fylgst með textanum og sungið saman.
Montréttur og verðlaun
Sigurvegararnir vinna sér inn montréttinn og fá líka verðtryggðan afslátt af giggum hjá Fimmunni. Enn ein ástæða til að peppa liðið og taka þátt í fjörinu.

Tónlist og samsöngur við öll tækifæri

Stór hátíð eða einföld samvera með vinum og fjölskyldu. Fimman fær hópinn með í tónlist og samsöng í skemmtilegum kvissbúningi.

Afmæli

Afmælisgestirnir velja lögin og syngja með. Kvissið fléttast inn í tónlistina.

Árshátíðir

Trúbador leiðir samsönginn og kvissbúningurinn fær salinn með í fjörið.

Brúðkaup

Sameiginleg tónlistarstund fyrir brúðkaupsgestina með lögum, samsöng og léttum kvissblæ.

Jólahlaðborð

Lífgið upp á jólagleðina með tónlist og samsöng sem fær gestina með í fjörið.

Hópefli á vinnustað

Brjótið upp vinnudaginn í hádeginu eða á vinnustofudegi. Tónlist og samsöngur sem hristir upp í hópnum.

Árgangamót

Tónlist og samsöngur með árganginum. Sérstilling setur árgangana saman í lið án fyrirhafnar.

Ættarmót

Safnið ættinni saman í lög og samsöng og skapið nýjar minningar með skemmtilegum kvissblæ.

Spilakvöld

Brjótið upp spilakvöldið með lifandi tónlist og leyfið keppnisskapinu að njóta sín.

Matarboð

Bætið tónlist og samsöng við samveruna og fáið gestina með í fjörið.

Umsagnir

Takk Stefán, fyrir að gera kvöldið skemmtilegt, vekja partýið, galdra með okkur sprell og koma öllum á óvart, þetta heppnaðist fullkomlega. 100% ánægja með þitt framlag.
Elvar Níelssonsep. 2026
Stefán kom í fertugs afmælið mitt og sló heldur betur í gegn! Það var ótrúlega gaman að sjá hvernig hann virkjaði alla í partýinu með því að leyfa öllum að taka þátt í því að velja lög og svo síðar að giska á lögin. Þetta konsept sem hann er með er gargandi snilld og hentar pottþétt í öll tilefni. Ég mæli svo mikið með því að fá Stebba í partýið ykkar!
Fertugsafmæli Öllaágú. 2026
Stebbi, trúbador klikkar ekki! Hann mætti, kveikti í stemningunni strax í fyrsta lagi og hélt fólki syngjandi og trallandi allt kvöldið. Frábær þátttaka og stanslaust stuð, mælum 100% með honum!
Rúnar Ójún. 2026
Stebbi kom í brúðkaupsveislu til okkar og fékk hann alla gesti með sér og skapaði geggjaða stemmingu! Þvílílur fagmaður og höfum við áður fengið hann í partý og alltaf tekst honum að rífa upp stemminguna!!! Mælum 150% með honum!!!
Hildur Anna og fjölskyldajún. 2026
Ekkert eðlilega nett hópefliskonsept hjá Fimmunni. Lagakosningin, kvissið, textarnir beint í símann, liðsbúningarnir, þráðlausu mækarnir og kassatromman bjuggu til geggjaða stemningu! Allt var vel útfært, ótrúlega þægilegt og allir tóku þátt frá því að Fimman mætti á svæðið talandi í mækinn. Það er algjört understatement að kalla þetta trúbb, þetta var alvöru stemningsbomba 💣 Einn gesturinn fór í alla búningana og afmælisbarnið sjálft var á kassatrommunni nánast allt giggið. Ómetanlegar minningar, takk kærlega fyrir okkur!
Fertugsafmæli Stjánajún. 2026
Gott vibe ehf, nafn fyrirtækis Fimmunnar, átti vel við stutta innlitið hans til okkar. Lagakosningin og quizzið var mjög flott og svo sækir maður bara reikning í sjálfsafgreiðslu inni á bókunarsíðunni. Svo má ekki gleyma snilldar sjálfsafgreiðslunni með verðið, sem var einnig mjög viðráðanlegt. Fór í raun allt langt fram úr væntingum, sem voru samt talsverðar eftir að hafa heyrt góða hluti.
Einarjún. 2026
Algjörlega frábær 🥳
Thorunn Ingjaldsmaí 2026
Fimman kom í gæsapartý og sló aldeilis í gegn! Þvílíkur fagmaður sem kann heldur betur að halda stuðinu gangandi 🥳
Erna Haraldsdóttirmaí 2026
Alveg frábær!
Unnur Hólmfríður Sigurðardóttirmaí 2026
Fimman var með skemmtilegan tónlistarleik þar sem gestir áttu að giska á lögin og það heppnaðist fullkomlega. Eftir það skapaðist algjör toppstemning og allir skemmtu sér frábærlega. Mikil ánægja var með Fimmuna og Ariel-viðbótina sem sló líka í gegn. Við gætum ekki verið ánægðari með kvöldið ❤️
Tvítugsafmæli Magneumaí 2026
TAKK TAKK OG AFTUR TAKK <3 Þvílík stemming sem setti afmælið á allt annað level. Mæli algjörlega með og allir enn að tala um hvað hafi verið frábært að geta farið inn á símana og sungið með textunum þar. Engin smá stemming sem myndaðist og ótrúlegasta fólk komið með migrafóninn í hönd. Ekki spurning að þetta er eitthvað sem gjörsamlega slær í gegn í svona afmælisfjöri þar sem misjafn hópur fólks og aldurshópur mætist. Allir voru komnir með í söng hvort sem það voru þau yngstu eða elstu. Gæti ekki verið ánægðari. Bóka klárlega aftur ef verð með einhvern svona viðburð aftur.
Guðrún Sólveig Ríkarðsdóttirapr. 2026
Stebbi og Aríel voru frábærir, héldu uppi þvílíkri stemningu og gleði allan tímann. Frábært líka að hafa lagakosninguna, textana og ég tala nú ekki um auka mækana. Ég get 100 prósent mælt með þeim.
Anna Kristín apr. 2026
Stebbi var frábær að vanda. Hann hefur svo þægilega og afslappaða nærveru og nær öllum með! Fjórða skiptið sem ég fæ hann og alltaf þegar hann er farinn byrja gestirnir að tala um hvað hann sé flottur gæi, bregst ekki! 😄😎 10/10
Hrafn Harðarsonmar. 2026
Akkúrat passlegt! Fimman er snilld. Mætir á réttum tíma eftir að hafa gefið gestum tækifæri til að setja saman þeirra lagaval. Spilar svo og syngur eins og engill og fær gesti með í gleðina alla leið. Get svo sannarlega mælt 110% með þessu prógrammi.
Helgi Teitur Helgasonfeb. 2026

Væntanlegt: ykkar eigin spurningar

Bókunaraðili mun geta búið til sínar eigin spurningar inni á bókuninni. Þær fléttast inn í tónlistina og gera viðburðinn enn persónulegri. Fullkomið fyrir brúðkaup eða til að negla innanhússhúmorinn hjá hópnum.

Væntanlegt strax helgina 24. og 25. október 2026.

Algengar spurningar

Hvað kostar að bóka Fimmuna?

Verðið kemur fram í verðreiknivélinni á fyrirspurnasíðunni. Allt er innifalið og enginn aukakostnaður. Opna verðreiknivél

Hvað tekur dagskráin langan tíma?

Dagskráin er 45 til 60 mínútur og hefst um leið og gestir byrja að kjósa.

Þarf að setja eitthvað upp?

Nei, dagskráin hefst um leið og gestir kjósa. Engin uppsetning eða bið. Fimman leggur til allan búnað og þú þarft ekkert að útvega eða undirbúa.

Hvar er Fimman í boði?

Fimman býður upp á dagskrána á höfuðborgarsvæðinu.

Hversu margir geta tekið þátt?

Ekkert lágmark og ekkert hámark er á fjölda þátttakenda.

Hvernig fer kvissbador fram?

Kvissbador blandar saman trúbador og tónlistarquizi. Salurinn keppir í liðum, kýs lög, giskar og syngur með. Fimman les stemninguna og stillir jafnvægið milli kviss og samsöngs á meðan á gigginu stendur.

Getum við búið til okkar eigin spurningar?

Bókunaraðili mun geta búið til sínar eigin spurningar inni á bókuninni. Þær fléttast inn í tónlistina og gera viðburðinn enn persónulegri. Fullkomið fyrir brúðkaup eða til að negla innanhússhúmorinn hjá hópnum. Væntanlegt strax helgina 24. og 25. október 2026.

Er hægt að fá Fimmuna í hádeginu á vinnustaðinn?

Já. Tónlist og samsöngur í skemmtilegum kvissbúningi geta brotið upp vinnudaginn, til dæmis í hádeginu eða á vinnustofudegi. Dagskráin tekur 45 til 60 mínútur og Fimman leggur til allan búnað. Skoða hópefli á vinnustað

Senda fyrirspurn