Lifandi tónlist · sameiginleg gleði
Tónlistarquiz í afmæli
Safnið hópnum saman í tónlist og samsöng í afmælinu. Tónlistin sameinar hópinn og keppnin fær alla til að taka þátt. Umræðan um úrslitin og hvernig stemningsbónusunum var dreift heldur svo áfram löngu eftir að dagskránni lýkur.
Allir með í tónlistinni
Afmælisgestirnir velja lögin saman, giska í liðum og syngja með. Þannig verður afmælið að tónlistarstund sem gestirnir móta sjálfir. Viltu dansgólf? Bókaðu DJ, hljómsveit eða annan trúbba. Viltu að allir séu með og á kafi í fjörinu? Bókaðu Kvissbadorinn.
Allur hópurinn verður hluti af tónlistinni
Tónlist og samsöngur eru í forgrunni. Liðin, búningarnir og kvissið gera þátttökuna enn skemmtilegri.
- Liðaskipting og búningar
- Borðnúmer, árgangar og liðsbúningar hjálpa gestum að finna sína liðsfélaga og koma liðspeppinu af stað.
- Staðan í beinni
- Stöðutafla í beinni, eða live leaderboard, sýnir stöðu liða og einstaklinga á meðan dagskráin gengur. Sjáið stigin safnast upp þegar lögin og kvissið halda áfram.
- Lagatextarnir beint í símann
- Þegar svarið er komið birtast lagatextarnir í símunum. Þannig geta allir fylgst með textanum og sungið saman.
- Montréttur og verðlaun
- Sigurvegararnir vinna sér inn montréttinn og fá líka verðtryggðan afslátt af giggum hjá Fimmunni. Enn ein ástæða til að peppa liðið og taka þátt í fjörinu.
Afmælisgestirnir velja lögin
Lagakosningin fær gestina inn í dagskrána frá fyrstu sekúndu. Síðan er komið að tónlistarspurningum og lögum sem gestir geta sungið með.
45 til 60 mínútur af tónlist
Fimman kemur með allan búnað. Þú þarft ekkert að útvega eða undirbúa og það er engin uppsetning eða bið fyrir gestina.
Skipuleggðu afmælið
Dagskráin er í boði á höfuðborgarsvæðinu, án lágmarks eða hámarks á fjölda þátttakenda. Verðreiknivélin sýnir verðið; allt er innifalið og enginn aukakostnaður.
Væntanlegt: ykkar eigin spurningar
Bókunaraðili mun geta búið til sínar eigin spurningar inni á bókuninni. Þær fléttast inn í tónlistina og gera viðburðinn enn persónulegri. Fullkomið fyrir brúðkaup eða til að negla innanhússhúmorinn hjá hópnum.
Væntanlegt strax helgina 24. og 25. október 2026.