← Fimman

Lifandi tónlist · sameiginleg gleði

Tónlist og samsöngur í brúðkaupi

Safnið brúðkaupsgestunum saman í tónlist og samsöng í brúðkaupinu. Tónlistin sameinar hópinn og keppnin fær alla til að taka þátt. Umræðan um úrslitin og hvernig stemningsbónusunum var dreift heldur svo áfram löngu eftir að dagskránni lýkur.

Allir með í tónlistinni

Í brúðkaupinu geta gestir úr ólíkum hópum hist yfir lagavali, liðakeppni og samsöng. Þátttakan tengir fólk saman og brýtur ísinn milli borða. Viltu dansgólf? Bókaðu DJ, hljómsveit eða annan trúbba. Viltu að allir séu með og á kafi í fjörinu? Bókaðu Kvissbadorinn.

Allur hópurinn verður hluti af tónlistinni

Tónlist og samsöngur eru í forgrunni. Liðin, búningarnir og kvissið gera þátttökuna enn skemmtilegri.

Liðaskipting og búningar
Borðnúmer, árgangar og liðsbúningar hjálpa gestum að finna sína liðsfélaga og koma liðspeppinu af stað.
Staðan í beinni
Stöðutafla í beinni, eða live leaderboard, sýnir stöðu liða og einstaklinga á meðan dagskráin gengur. Sjáið stigin safnast upp þegar lögin og kvissið halda áfram.
Lagatextarnir beint í símann
Þegar svarið er komið birtast lagatextarnir í símunum. Þannig geta allir fylgst með textanum og sungið saman.
Montréttur og verðlaun
Sigurvegararnir vinna sér inn montréttinn og fá líka verðtryggðan afslátt af giggum hjá Fimmunni. Enn ein ástæða til að peppa liðið og taka þátt í fjörinu.

Tónlistarstund sem gestirnir taka þátt í

Gestir kjósa lögin og syngja með. Spurningarnar fléttast inn í tónlistina og gefa hópnum enn fleiri tilefni til að hlæja og skemmta sér saman.

Einfalt fyrir brúðhjónin

Dagskráin tekur 45 til 60 mínútur og hefst strax með lagakosningu. Fimman leggur til allan búnað og þið þurfið ekkert að útvega eða undirbúa.

Fyrir brúðkaupið ykkar

Fimman er í boði á höfuðborgarsvæðinu, án lágmarks eða hámarks á fjölda þátttakenda. Skoðið verðreiknivélina og sendið fyrirspurn um brúðkaupið. Allt er innifalið og enginn aukakostnaður.

Væntanlegt: ykkar eigin spurningar

Bókunaraðili mun geta búið til sínar eigin spurningar inni á bókuninni. Þær fléttast inn í tónlistina og gera viðburðinn enn persónulegri. Fullkomið fyrir brúðkaup eða til að negla innanhússhúmorinn hjá hópnum.

Væntanlegt strax helgina 24. og 25. október 2026.

Skoða verð og senda fyrirspurn →