Lifandi tónlist · sameiginleg gleði
Hvað er kvissbador?
Kvissbador er blanda af trúbador og tónlistarquizi. Í stað hefðbundins trúbadorsetts þar sem góður söngur á að koma fólki út á dansgólfið, keppir salurinn í liðum, kýs, giskar og syngur með. Fimman les stemninguna og stillir jafnvægið milli quiz og samsöngs á meðan á giggi stendur. Útkoman er kvöld þar sem allir eru með, ekki bara þeir sem dansa.
Allur hópurinn verður hluti af tónlistinni
Tónlist og samsöngur eru í forgrunni. Liðin, búningarnir og kvissið gera þátttökuna enn skemmtilegri.
- Liðaskipting og búningar
- Borðnúmer, árgangar og liðsbúningar hjálpa gestum að finna sína liðsfélaga og koma liðspeppinu af stað.
- Staðan í beinni
- Stöðutafla í beinni, eða live leaderboard, sýnir stöðu liða og einstaklinga á meðan dagskráin gengur. Sjáið stigin safnast upp þegar lögin og kvissið halda áfram.
- Lagatextarnir beint í símann
- Þegar svarið er komið birtast lagatextarnir í símunum. Þannig geta allir fylgst með textanum og sungið saman.
- Montréttur og verðlaun
- Sigurvegararnir vinna sér inn montréttinn og fá líka verðtryggðan afslátt af giggum hjá Fimmunni. Enn ein ástæða til að peppa liðið og taka þátt í fjörinu.
Tónlist með pub quiz stemningu
Lögin og samsöngurinn eru í aðalhlutverki. Skemmtunin fær léttan pub quiz blæ þegar spurningum er fléttað inn í lifandi tónlistina og salurinn tekur þátt.
Gestir móta dagskrána
Þátttakan byrjar með lagakosningu. Síðan tekur lifandi tónlistarquiz við og gestir syngja með. Dagskráin er 45 til 60 mínútur.
Hópurinn þarf ekkert að undirbúa
Fimman leggur til allan búnað. Dagskráin er í boði á höfuðborgarsvæðinu, án lágmarks eða hámarks á fjölda þátttakenda.
Væntanlegt: ykkar eigin spurningar
Bókunaraðili mun geta búið til sínar eigin spurningar inni á bókuninni. Þær fléttast inn í tónlistina og gera viðburðinn enn persónulegri. Fullkomið fyrir brúðkaup eða til að negla innanhússhúmorinn hjá hópnum.
Væntanlegt strax helgina 24. og 25. október 2026.