Lifandi tónlist · sameiginleg gleði
Algengar spurningar
Fyrst og fremst tónlist og samsöngur í skemmtilegum kvissbúningi. Hér finnurðu svör um verð, dagskrárlengd og framkvæmd hjá Fimmunni.
Allur hópurinn verður hluti af tónlistinni
Tónlist og samsöngur eru í forgrunni. Liðin, búningarnir og kvissið gera þátttökuna enn skemmtilegri.
- Liðaskipting og búningar
- Borðnúmer, árgangar og liðsbúningar hjálpa gestum að finna sína liðsfélaga og koma liðspeppinu af stað.
- Staðan í beinni
- Stöðutafla í beinni, eða live leaderboard, sýnir stöðu liða og einstaklinga á meðan dagskráin gengur. Sjáið stigin safnast upp þegar lögin og kvissið halda áfram.
- Lagatextarnir beint í símann
- Þegar svarið er komið birtast lagatextarnir í símunum. Þannig geta allir fylgst með textanum og sungið saman.
- Montréttur og verðlaun
- Sigurvegararnir vinna sér inn montréttinn og fá líka verðtryggðan afslátt af giggum hjá Fimmunni. Enn ein ástæða til að peppa liðið og taka þátt í fjörinu.
Hvað kostar að bóka Fimmuna?
Verðið kemur fram í verðreiknivélinni á fyrirspurnasíðunni. Allt er innifalið og enginn aukakostnaður. Opna verðreiknivél
Hvað tekur dagskráin langan tíma?
Dagskráin er 45 til 60 mínútur og hefst um leið og gestir byrja að kjósa.
Þarf að setja eitthvað upp?
Nei, dagskráin hefst um leið og gestir kjósa. Engin uppsetning eða bið. Fimman leggur til allan búnað og þú þarft ekkert að útvega eða undirbúa.
Hvar er Fimman í boði?
Fimman býður upp á dagskrána á höfuðborgarsvæðinu.
Hversu margir geta tekið þátt?
Ekkert lágmark og ekkert hámark er á fjölda þátttakenda.
Hvernig fer kvissbador fram?
Kvissbador blandar saman trúbador og tónlistarquizi. Salurinn keppir í liðum, kýs lög, giskar og syngur með. Fimman les stemninguna og stillir jafnvægið milli kviss og samsöngs á meðan á gigginu stendur.
Getum við búið til okkar eigin spurningar?
Bókunaraðili mun geta búið til sínar eigin spurningar inni á bókuninni. Þær fléttast inn í tónlistina og gera viðburðinn enn persónulegri. Fullkomið fyrir brúðkaup eða til að negla innanhússhúmorinn hjá hópnum. Væntanlegt strax helgina 24. og 25. október 2026.
Er hægt að fá Fimmuna í hádeginu á vinnustaðinn?
Já. Tónlist og samsöngur í skemmtilegum kvissbúningi geta brotið upp vinnudaginn, til dæmis í hádeginu eða á vinnustofudegi. Dagskráin tekur 45 til 60 mínútur og Fimman leggur til allan búnað. Skoða hópefli á vinnustað
Væntanlegt: ykkar eigin spurningar
Bókunaraðili mun geta búið til sínar eigin spurningar inni á bókuninni. Þær fléttast inn í tónlistina og gera viðburðinn enn persónulegri. Fullkomið fyrir brúðkaup eða til að negla innanhússhúmorinn hjá hópnum.
Væntanlegt strax helgina 24. og 25. október 2026.