← Forsíða

Hver er ég?

Hæ, ég heiti Stefán en flestir þekkja mig sem Stebba. Ég er fæddur 1986 og blanda saman mínu daglega starfi sem verkefnastjóri við mína sönnu ástríðu: að búa til stemningu með tónlist.

Fátt gleður mig meira en að spila og syngja með öðrum. Ég hóf trúbadoravegferðina mína formlega sumarið 2023.

Langtímamarkmiðið mitt er að hætta í dagvinnunni þegar börnin eru orðin nógu stór, svo ég geti trúbbað á kvöldin á suðrænum stað og spilað golf með fjölskyldu og vinum á daginn.

Konseptið

Nokkurra laga singalong stemmari þar sem eina leiðin til sigurs er að syngja með og hafa gaman! Algjört less is more konsept.

Gestirnir geta valið lögin sjálfir í gegnum lifandi kosningu. Svo er ég með þráðlausa mæka sem fljóta milli gestanna.

Ég er kannski ekki besti söngvarinn eða gítarleikarinn, en ég legg mig alltaf allan fram til þess að tryggja að dagurinn ykkar sé að minnsta kosti aðeins betri eftir mitt stutta innlit!

Hálftíminn

Lightweight útgáfa. Ég mæti tengdur og byrja strax. Flæðandi lagakosning, einn auka mæki og cajón tromma. Fullkomið þegar farið er að líða á kvöldið.

Klukkutíminn

Þegar þetta er orðið að meira partý! Klukkutími frá komu. Allir fjórir þráðlausir mækarnir og cajón tromma. Byrja 10 mín. eftir komu, spila í 50 mín.

3 lög

Þegar þú vilt bara fá smá auka líf í veisluna. Einnig fullkomið til þess að fá heimsendingu á karaoke græjunum með smá live music innifaldri.

Fimman

Upphaflega konseptið. Hentar best í spjallgír þar sem við gefum okkur góðan tíma í kosningu og allt það. Gestirnir kjósa sína Fimmu (fimm lög) og við syngjum saman í fullri lengd og svo er að sjálfsögðu innbyggt uppklapp. Verð farinn tæpum klukkara eftir að ég mætti.

📱 618-1819
✉️ stebbitonlist@gmail.com