Síðan er aðallega hugsuð fyrir símann - en ég tek glaður við desktop tips&tricks
Tossi
Emmsjé Gauti
2021
Þegar borgin slekkur á sér
þá finn ég losna um þessa depurð
ég veit ekkert hvað amar að mér
get ekkert í því gert,
ég er þannig af guði gerður.
Ég er ekki eins og fólk er flest
nei ég hef aðra sýn á fegurð
Ég hef alltaf verið tossi úr skóla lífsins
get ekkert í því gert,
ég er þannig af guði gerður.
En við kunnum allavega að hafa gaman
Eyðileggjum líf okkar og hlægjum síðan yfir þessu saman.
En við kunnum allavega að hafa gaman
Eyðileggjum líf okkar og grátum síðan yfir þessu saman.
Ég veit að moldin mun kalla á mig
tíminn segir svo hvenær það verður
en ég finn þessar hugsanir herja á mig
get ekkert í því gert,
ég er þannig af guði gerður.
Ég á allt en sé það sem vantar
það er minn helsti og stærsti brestur
ég held ég muni alltaf draga skrattann
get ekkert í því gert,
ég er þannig af guði gerður.
En við kunnum allavega að hafa gaman
Eyðileggjum líf okkar og hlægjum síðan yfir þessu saman.
En við kunnum allavega að hafa gaman
Eyðileggjum líf okkar og grátum síðan yfir þessu saman.