top of page

Til hvers þá að segja satt?

Bubbi, Friðrik Dór

2025

Hann beið færis undir rósarunnanum

Og er bráðin bærðist

Hann steig hratt úr skugganum

Loksins passar ásjónan og persónan

En fallið verður hátt af hesti hreppsstjórans

En hvers vegna ætti maðurinn að segja satt,

þegar lygin loðin getur flogið svona hratt?

Já til hvers þá að segja satt?

Hvers vegna ætti maðurinn að segja satt?

Hentu manneskju á bálið

sjáðu augu fólksins ljóma glatt.

Stolnum fjöðrum skreyttir hófu sig á flug,

hræddir menn sem allir héldu heimsku vera dug.

En tíminn okkur teymir öll til dómarans

Já fallið verður hátt af hesti hreppsstjórans

bottom of page