top of page

Það er gott að elska

Bubbi

1993

Það var einn morgun snemma sumars,

þegar sólin kíkti inn  

ég sat við gluggann með kaffið,

var að horfa á himininn

geislarnir tipluðu inn á hvítum fótum

og földu brosin sín  

og fundu þig undir sænginni mjúku

og opnuðu augun þín.


Það er gott að elska, og það er gott að elska

það er gott að elska, konu eins og þig.     


Þú býður mér blíðlega góðan dag

og drekkur þitt kínverska te  

dimmblá fegurð augna þinna

er það eina sem ég sé

Það er ljúft að horfa á þig

og finna friðinn sem leggur frá þér  

þú ert falleg svona nývöknuð,

þú ert allt sem ég óska mér.


Það er gott að elska, og það er gott að elska

það er gott að elska, konu eins og þig.     


Og nú er ég orðinn faðir

og finn hvursu ljúft það er  

að fá furðu smáar hendur

að morgni dags um háls á mér.

Og gagnvart konu eins og þér

er ástin mitt eina svar

og ef það er líf eftir þetta líf

þá mun ég elska þig líka þar.


Það er gott að elska, og það er gott að elska

það er gott að elska, konu eins og þig…

bottom of page