top of page

Sem aldrei fyrr

Bubbi

1993

Suma dreymir gull og græna skóga

og gráta þeir eiga ekki meir.

Með gallbragð í munni brosa beiskir

og bölva þar til sálin í þeim deyr.

Og Júdas er verðlaus lúser,

sem lífinu hafnaði segja þeir.


En mig dreymir aðeins þessa einu konu,

það er eldfimt loftið þar sem hún fer.

Það er gott að elska og eiga hennar hjarta

og hún elskar mig eins og ég er.


Og ég veit hvar frelsið er að finna,

í faðm’ hennar þar bíður eftir mér.

Og það er vont að vera týndur

í veröld sem engar hefur dyr.

Og fyrir þá sem aldrei hafa elskað

hlýtur tíminn að standa kyrr.

En ég er ástfanginn

sem aldrei fyrr.


Jú, mig dreymir aðeins þessa einu konu

og allan þennan þokka sem hún ber.

Það er gott að elska og eiga hennar hjarta

því hún tekur mér eins og ég er.


Og ég veit hvar frelsið er að finna,

í faðm’ hennar það bíður eftir mér.

Og það er vont að vera týndur

í veröld sem engar hefur dyr.

Og fyrir þá sem aldrei hafa elskað

hlýtur tíminn að standa kyrr.

En ég er ástfanginn

sem aldrei fyrr.

bottom of page