top of page

Rúlletta

Iceguys

2023

Hún snýr mér í hringi

Er alveg á ról’eins og rúlletta

Vefur mér á fingri

Ert í tómu tjóni en hún púllar það

En hvernig nær hún mér alltaf

Hvernig getur hún kvartað

Þegar ég er búinn að gera allt

Ég myndi tæm’essa vasa

Myndi klæð’ana í Prada

En þá er það ekki lengur það, sem hún þarf


En ef þú gefur mér séns, 

þá muntu ekki sjá eftir því

Ef þú átt til eitt augnablik

Myndirðu eyða því í mig?

Ef þetta sinn er seinasta sinn

Vil ekki eiga það inni

Ég vil ekki vaka (hey)

og hugsa til baka (nei)

um orðin sem ég sagði aldrei

Ef þetta sinn er seinasta sinn

Vil ekki eiga það inni


Ah, hún lýsir upp pleisið

Já hún er með kraft eins og kjarnorka

Setur upp pókerfeisið

Mér tekst aldrei að ná að lesa það

Já bara hvernig hún angar

lætur mig alltaf langa’að

fá að fikra mig aðeins nær

Ég gæfi gull, græna skóga

Sem hún vill meira en nóg af

En þá er það ekki lengur það, sem hún þarf


En ef þú gefur mér séns, 

þá muntu ekki sjá eftir því

Ef þú átt til eitt augnablik

Myndirðu eyða því í mig?

Ef þetta sinn er seinasta sinn

Vil ekki eiga það inni

Ég vil ekki vaka (hey)

og hugsa til baka (nei)

um orðin sem ég sagði aldrei

Ef þetta sinn er seinasta sinn

Vil ekki eiga það inni


Með mig í vasanum,

hún var ekki hlut’af planinu (ó nei, nei, nei)

Illt í hjartanu, 

þegar ég horfi á hana labba burt (frá mér)


Ef þú átt til eitt augnablik

Myndirðu eyða því í mig?

Ef þetta sinn er seinasta sinn

Vil ekki eiga það inni

Ég vil ekki vaka (hey)

og hugsa til baka (nei)

um orðin sem ég sagði aldrei

Ef þetta sinn er seinasta sinn

Vil ekki eiga það inni


Ef þú átt til eitt augnablik

Myndirðu eyða því í mig?

Ef þetta sinn er seinasta sinn

Vil ekki eiga það inni

Ég vil ekki vaka (hey)

og hugsa til baka (nei)

um orðin sem ég sagði aldrei

Ef þetta sinn er seinasta sinn

Vil ekki eiga það inni

…eiga það inni


bottom of page