top of page

Reykingar

Stuðmenn

1982

Reykingar mjög heilla rafta,

rettuna færi ég Skafta.

Fáðu þér smók    

og sopa af kók

og sjúgðu' í þig kosmíska krafta.


Það borgar sig stundum að kvarta.

Á kinninni kúrir ein varta.

Brenndu' hana burt,    

þá lódimmu urt

og sendu' út svartnættið bjarta.


Spennum nú beltin fín,

varlega ástin mín.

Hver er sinnar gæfu smiður,

hver er næstur sjálfum sér

Hver er sinnar gæfu smiður,

hver er næstur sjálfum sér

Ó,   ó,   ó.  


Ég er á skósíðum frakka.

Það er fallegt á Stokkseyrarbakka.

Þú varst sjálfur í eina tíð prakka-

ritvél hefur takka,

hverjum sem það er að þakka.


Spennum nú beltin fín,

varlega ástin mín.

Hver er sinnar gæfu smiður,

hver er næstur sjálfum sér

Hver er sinnar gæfu smiður,

hver er næstur sjálfum sér

Ó,   ó,   ó.  


Hver er tilgangurinn með þessu jarðlífi?

O, ó, hver er ég?      

Hvar endar alheimurinn?

skyldi' hann enda, skyldi' hann enda inní mér?      

Hver er sinnar gæfu smiður,

hver er næstur sjálfum sér

Hver er sinnar gæfu smiður,

hver er næstur sjálfum sér

Ó,   ó,   ó.  

bottom of page