top of page
Síðan er aðallega hugsuð fyrir símann - en ég tek glaður við desktop tips&tricks
Rangur maður
Sólstrandargæjarnir, Jónas Sigurðsson
1995
Af hverju get ég ekki
lifað eðlilegu lífi
Af hverju get ég ekki
lifað business lífi
keypt mér húsbíl og íbúð
Af hverju get ég ekki
gengið menntaveginn
þangað til að ég æli
Af hverju get ég ekki
gert neitt af viti
af hverju fæddist ég loser, jé,jé,jé.
Ég er rangur maður á röngum tíma
í vitlausu húsi.
Ég er rangur maður á röngum tíma
í vitlausu húsi!
Af hverju er lífið svona ömurlegt
ætli það sé skárra í Zimbabwe
Af hverju var ég fullur á virkum degi
af hverju mætti ég ekki í tíma
Af hverju get ég ekki
byrjað í íþróttum
og hlaupið um eins og asni
Af hverju get ég ekki
verið jafn hamingjusamur
og Sigga og Grétar í Stjórninni, jé,jé,jé.
Ég er rangur maður á röngum tíma
í vitlausu húsi.
Ég er rangur maður á röngum tíma
í vitlausu húsi!
bottom of page