top of page

Negril

Bjartmar Guðlaugsson

2013

Það var ljóð

sem lifði langan vetur

læddist þó til suðurs

þegar færi til þess gafst

Þetta ljóð

vildi líta allan heiminn

tyllti sér á klettaströnd

við Karabíahaf


Þar má sjá  

þegar sólin súnkar í hafið

og býður góða nótt.

Heyra má  

þegar takturinn rumskar í rjóðrinu

og fæðist ofurhljótt

Innst í orðsins spá

lífsins speki í letikasti


Það var ljóð

sem vildi sætta allan heiminn

lét þó lítið á sé bera

þar til færi til þess gafst

Þetta ljóð

með augu blíð og dreymin

tyllti sér á klettaströnd

við Karabíahaf


Þar má sjá  

þegar sólin súnkar í hafið

og býður góða nótt.

Heyra má  

þegar takturinn rumskar í rjóðrinu

og fæðist ofurhljótt

Innst í orðsins spá

lífsins speki í letikasti lá


Millikafli

    

Þar má sjá  

þegar sólin súnkar í hafið

og býður góða nótt.

Heyra má  

þegar takturinn rumskar í rjóðrinu

og fæðist ofurhljótt

Innst í orðsins spá

lífsins speki í letikasti


Þvílík veisla fyrir heilann

mælti rokkskáldið og steig sinn ástardans

bottom of page