top of page

Leiðin okkar allra

Hjálmar

2007

Kórinn


Ég ætla mér, út að halda

Örlögin valda því.


Mörgum á ég, greiða að gjalda

Það er gömul saga og ný.


Guð einn veit, hvert leið mín liggur

Lífið svo flókið er.  


Oft ég er, í hjarta hryggur

En ég harka samt af mér.


Eitt lítið knús, elsku mamma  

Áður en ég fer.


Nú er ég kominn til að kveðja

Ég kem aldrei framar hér.


Kórinn

                    

Er mánaljósið, fegrar fjöllin

Ég feta veginn minn.


Dyrnar opnar draumahöllin

Og dregur mig þar inn


Ég þakkir sendi, sendi öllum    

Þetta er kveðja mín


Ég mun ganga á þessum vegi    

Uns lífsins dagur dvín

Ég mun ganga á þessum vegi    

Uns lífsins dagur dvín


Kórinn

bottom of page