top of page

Í löngu máli

Una Torfa

2022

Hvenær fórstu síðast í hláturskast?

Hvaða orð finnst þér falleg?

Er það hvernig þau hljóma eða hvað þau þýða?

Og hvenær varstu síðast dónaleg?

Hvað er það við stað sem gerir hann kósý?

Hvað finnst þér erfitt en gefandi?


Hvað finnst þér um sumar á Íslandi?

Hvaða afrek hafa gert þig stolta?

Notaru blýant eða penna?

Og ef þú gætir verið hvar sem er,

hvert í heiminum myndirðu vilja fara?

Myndirðu vilja vera hér?


Viltu svara öllu í löngu máli?

Mig langar að heyra!

Síðan máttu svara aftur,

langar svo að þú talir meira.

Því þú segir svo vel frá,

gleymir aldrei neinu

Ég segi góðar sögur

en ég hef þær ekki á hreinu

En kannski ef ég segi þér þá manstu þær með mér


Hvað er það fallegasta sem þú hefur séð?

Hvað er mikilvægt í fari fólks?

Hvað finnst þér skemmtilegt að gera?

Ef þú gætir verið hvar sem er,

hvert í heiminum myndirðu vilja fara?

Myndirðu vilja vera hjá mér?


Viltu svara öllu í löngu máli?

Mig langar að heyra!

Síðan máttu svara aftur,

langar svo að þú talir meira.

Því þú segir svo vel frá,

gleymir aldrei neinu

Ég segi góðar sögur

en ég hef þær ekki á hreinu

En kannski ef ég segi þér þá manstu þær með mér


Manstu hvaða flík þú ferð í fyrst?

Hvernig væri best að taka á móti

þér þegar þú kemur heim?

Mmmmm óóóó hmm mmmm

Myndirðu vera alltaf hjá mér?


Viltu svara öllu í löngu máli?

Mig langar að heyra!

Síðan máttu svara aftur,

langar svo að þú talir meira.

Því þú segir svo vel frá,

gleymir aldrei neinu

Ég segi góðar sögur

en ég hef þær ekki á hreinu

En kannski ef ég segi þér þá manstu þær með mér

bottom of page