top of page

Hjarta

Hipsumhaps

2023

Einmana, samt fleiri en ein dama

Ást sem kemur og fer,

til í raun hvað sem er


Funheitur, sambönd er mitt eitur

sést vel á samskiptum,

tilraunir ganga ekki upp


Segðu mér hvað það er sem ég get lagað

því það er eitthvað sem ég hef eyðilagt

jarðaður, af eðalkvendi

skrifa smá skilaboð,

tek af mér mynd og sendi


Það er eitthvað að hjartanu í mér,

það heyrist aukaslag.

Ég þarf að fara í aðgerð,

og það helst strax í dag.


Mig langar ekki að deyja,

ég er ekki tilbúinn í það.

Langar að lifa lengur lengur,

læra einn daginn að elska.


Það er eitthvað að hjartanu í mér,

það heyrist aukaslag.

Ég þarf að fara í aðgerð,

og það helst strax í dag.


Ætla ég hingað, eða fer ég þangað?

Erfitt að segja til í miðju stjórnleysi.

Fastur í lúppu eins og hart teknólag,

langar að elska en er ófær um það.

Þrái að þrá, langar að langa.

Ég er eins og babúska,

tóm inní tóm inní tómi.


Það er eitthvað að hjartanu í mér,

það heyrist aukaslag.

Ég þarf að fara í aðgerð,

og það helst strax í dag.


Mig langar ekki að deyja,

ég er ekki tilbúinn í það.

Langar að lifa lengur lengur,

læra einn daginn að elska.


Það er eitthvað að hjartanu í mér,

það heyrist aukaslag.

Ég þarf að fara í aðgerð,

og það helst strax í dag.


Mig langar ekki að deyja,

ég er ekki tilbúinn í það.

Langar að lifa lengur lengur,

læra einn daginn að elska.


bottom of page