Síðan er aðallega hugsuð fyrir símann - en ég tek glaður við desktop tips&tricks
Fram á nótt
Nýdönsk
1989
Björn Jörundur
Börn og aðrir minna þroskaðir menn,
fóru að gramsa í mínum einkamálum,
þegar ég var óharðnaður enn
og átti erfitt með að miðla málum.
Daníel Ágúst
Þú varðst að ganga rekinn í kút,
til þess að verða ei fyrir aðkasti mannanna,
Og þó að þú litir alls ekki út fyrir að lifa,
eftir lögum þess bannaða.
Báðir
Hvernig kemst ég inn, þegar allt er orðið hljótt.
Fá að vera með um sinn að djamma fram á nótt.
Hvernig kemst ég inn, þegar allt er orðið hljótt.
Fá að vera með um sinn að djamma.
Björn Jörundur
Mitt vandamál er á andlega sviðinu,
hugsanirnar heimskar sem gínur á húsþökum.
Þú ættir að sjá í andlitið á liðinu,
er það sér úr þessu vandræði við bökum.