top of page

Draumur um Nínu

Eyjólfur Kristjánsson

1991

Núna ertu hjá mér, Nína

Strýkur mér um vangann, Nína

Ó, halt'í höndina á mér, Nína

Því þú veist að ég mun aldrei aftur

Ég mun aldrei, aldrei aftur

Aldrei aftur eiga stund með þér


Það er sárt að sakna einhvers.

Lífið heldur áfram - til hvers?

Ég vil ekki vakna, frá þér.

Því ég veit að þú munt aldrei aftur.

Þú munt aldrei, aldrei aftur.

Aldrei aftur strjúka vanga minn.


Þegar þú í draumum mínum birtist,

allt er ljúft og gott

Og ég vild'ég gæti sofið heila öld

Því að nóttin veitir aðeins

skamma stund með þér

Er ég vakna...

Nína, þú ert ekki lengur hér

Opna augun...

Engin strýkur blítt um vanga mér


Dagurinn er eilífð án þín

Kvöldið kalt og tómlegt án þín

Er nóttin kemur fer ég til þín


Þegar þú í draumum mínum birtist

allt er ljúft og gott

Og ég vild'ég gæti sofið heila öld

Því að nóttin veitir aðeins

skamma stund með þér

Er ég vakna...

Nína, þú ert ekki lengur hér

Opna augun...

Engin strýkur blítt um vanga mér


Er ég vakna - Oh

Nína, þú ert ekki lengur hér

Opna augun...

Engin strýkur blítt um vanga mér

bottom of page